Háþrýstiþvottur er okkar fag!

Reynsla og þekking = gæði.

Okkar þjónusta

Við bjóðum upp á fjölbreytta og faglega þrifaþjónustu sem hentar öllum þörfum

Gluggaþvottur

Við bjóðum upp á hágæða gluggaþvott fyrir einstaklinga, fyrirtæki, húsfélög og stofnanir.

Húsþvottur

Háþrýstiþvoum hús, klæðningar og þök með eða án sápu.
Undirbúum hús og þök fyrir málningu.

Pallaþvottur

Við tökum á okkur þrif á pöllum hvort sem um ræðir furu eða harðvið.

Atvinnuhúsnæði
Bílastæðahús
Útihús

Við tökum að okkur háþrýstiþvott á atvinnuhúsnæðum, bílastæðahúsum og útihúsum.

Rennuhreinsanir
Fráfallsrör

Hreinsum öll óhreinindi úr rennum og getum þvegið fráfallsrör að innan og losað stíflur.

Helluþvottur
Söndun

Við háþrýstiþvoum hellur og söndum aftur sé þess óskað.

Af hverju að velja okkur?

Við leggjum okkur fram við að veita góða þjónustu á sanngjörnu verði. Við notum eingöngu gæða hráefni frá viðurkenndum aðilum. Við erum með góð tæki og dælur til þess að sinna verkum vel og tryggja góðan árangur. Við höfum starfað í greininni í yfir 4 ár og á þeim tíma öðlast dýrmæta reynslu sem skilar sér faglegum vinnubrögðum og traustu sambandi við viðskiptavini okkar. Allt sem við gerum er unnið af alúð, metnaði og á besta máta.

Við leggjum áherslu á hreinskilin samskipti, nákvæmni og að skila úrvals niðurstöðum í hvert sinn. Hvort sem um er að ræða heimili, fyrirtæki eða stofnanir, þá bjóðum við uppá sveigjanlega þjónustu sem aðlagast þínum þörfum og tímaáætlun.

  • Öflugar bensíndælur og fagleg vinnubrögð
  • Notum eingöngu gæða efni
  • Reynsla og þekking
  • Ókeypis verðmat og tilboð
  • Þjónusta allan ársins hring
  • Sanngjörn verðlagning
Fáðu tilboð
Háþrýstiþvottaþjónusta

100+

Ánægðir viðskiptavinir

4+

Ár í viðskiptum

100+

Verkefni kláruð

Hvernig við störfum

Einfalt og skilvirkt ferli sem tryggir bestu niðurstöðurnar

1

Samband og bókanir

Hafðu samband við okkur í síma eða með tölvupósti til að bóka þjónustu. Við komum á staðinn og gefum ókeypis verðmat.

2

Tilboð

Að loknu ástandsmati færðu ítarlegt tilboð. Engin falin gjöld eða óvæntar kostnaðarhækkanir.

3

Fagleg framkvæmd

Við sinnum verkinu af alúð með fyrsta flokks búnaði og hágæða hreinsiefnum.

4

Eftirfylgni og ábyrgð

Við ljúkum verkinu með lokaskoðun og tryggjum að þú sért fullkomlega ánægð/ur.

Hvað segja viðskiptavinir okkar

Umsagnir frá viðskiptavinum

Virkilega vel þrifið og svakalegur dugnaður. Sprakk upp úr öllum væntingum! Tók vel í gegn nokkur stífluð niðurföll og ég hef aldrei séð bílakjallarann jafn hreinan og flottan.

GGÁ

Guðmundur Garðar Árnason

Frábærlega vel gert og var snöggur. Mæli með.

SH

Stefanía Hinriksdóttir

Kom og græjaði 200fm plan hjá mér og ég gæti ekki verið sáttari. Planið er eins og nýtt, get 100p mælt með.

JFS

JFS Sigurðsson

Snögg og góð þjónusta, mæli svo sannarlega með

BLÞ

Berglind Lilja Þorbergsdóttir

Tók og þreif hellurnar hjá mér, þæginleg og góð þjónusta!

SB

Steinþór Böðvarsson

Góð vinna, vandaðar vinnubrögð og snöggur. Bestu meðmæli!

HE

Halldór Eyjólfsson

Cleaned the area, porch outside my house. It was well done and i'm very happy.

IG

Ingileif Gunnarsdóttir

Góð þjónusta og góð vinnubrögð.

BIJ

Berglind Inga Jóhannsdóttir

Mjög fagleg þjónusta og frábær árangur. Mæli eindregið með þessari þjónustu!

EA

Einar Árnason

Fáðu tilboð í dag

Hafðu samband við okkur fyrir ókeypis verðmat og sérsniðið tilboð fyrir þitt verkefni

Ókeypis tilboð

Við metum verkefnið þitt og gefum þér nákvæmt og sanngjarnt tilboð. Engin falin aukagjöld - allt gegnsætt og fagmannlegt.

Hringdu fyrir tilboð:
848 7275
Sendu fyrirspurn:
tvotturogtjonusta@gmail.com
Þjónustusvæði:
Höfuðborgarsvæðið • Vesturland • Suðurnes
Suðurland • Förum lengra fyrir stærri verk
Verðlagning:
Sérsniðin tilboð byggð á
stærð og erfiðleikastigi verkefnis

Fáðu tilboð strax